SIGVALDI LÁRUS
  • Forsíða
  • Hafa samband

"Nýju ári er tekið fagnandi"

2/1/2014

 
Picture
Kæru vinir. Við óskum ykkur gleðilegs nýs árs með þökk fyrir það liðna. Nýju ári er tekið fagnandi og erum við fullviss um að það beri eitthvað gott í skauti sér. Hátíðarnar hafa verið notalegar umkringd okkar nánasta fólki en spennandi tímabil er framundan bæði hjá ferfætlingum og okkur hinum. Á liðnu ári ber hæst fæðing Helga Hrafns 13. júní og eins var gaman þegar ljósmyndin hér að ofan bar sigur úr bítum í ljósmyndakeppni Eiðfaxa.

Ár ferfætlinganna var ásættanlegt. Leiftur frá Búðadal batnaði með hverju mótinu í ár og stefnir á að gera enn betur 2014. Merin Sparta frá Skógskoti var sýnd og fékk glæsilega byggingareinkunn eða 8.37. Henni tókst ekki eins vel til í hæfileikadómnum en hún á það bara inni...vonandi í vor. Sóldögg stóð sig með stakri príði þó svo að hún hafi ekki sýnt sitt besta á stórmótum. Aftur á móti tókst henni að sigra nokkur mót og vera í toppnum á öðrum. Hún stóð uppi sem sigurvegari á Tekið til kostanna, Skagfirsku mótaröðinni, Riddaramóti Norðurlands, úrtökumót Stíganda og Léttfeta, varð 7. á Íslandsmótinu, 4. á Fjórðungsmóti Vesturlands og 2. á Sumarsmelli Harðar þar sem hún bætti tíman sinn í 7.86. Sigvaldi fór einnig með Akksdótturina Rausn frá Hólum í dóm og náði þar tæpum 1. verðlaunum. Einnig riðu þau sig inn á Fjórðungsmót Vesturlands í A-flokki og stóð hún sig þar með stakri prýði. Rausn er þræl skemmtileg meri, var reynslulítil á brautinni en toppaði allt í reiðtúrum með skemmtilegum vilja og fasi. 

Tvö folöld fæddust okkur í sumar. Bleikálóttur hestur undan Kolgrímsdótturinni Höllu frá Hamraendum og Hlyni frá Haukatungu og rauðstjörnótt meri undan Baldursdótturinni Hulu frá Hamraendum og Sóloni frá Skáney. Heimasætan á bænum hún Elísabet Líf sá um nafngift á þeim báðum. Merin fékk nafnið Rósa, sennilega í höfuðið á vinkonu sinni Rósu á Narfastöðum. Hesturinn fékk nafnið Skuggi. Sú fluga kom í hausinn á henni þegar keyrt var fram hjá hesthúsahverfi Skugga í Borgarnesi. Skemmtilegt hugmyndaflug hjá einni 4 ára en hún er strax byrjuð að leggja höfuðið í bleyti fyrir folöldum næsta sumars. Tveim merum var haldið í sumar, mæðgunum Hulu og Þrumu frá Skógskoti. Þær voru samferða að Feti í Rangárvallasýslu og heimsóttu töffarann Straum frá Feti sem var hæst dæmdi klárhestur ársins 2013 með aðaleinkunn upp á 8.34. Ekki við öðru að búast en að gæðingar fæðist okkur næstkomandi sumar.

Framundan er spennandi keppnistímabil. Sigvaldi mun taka þátt í Meistaradeild Norðurlands og að sjálfsögðu eru markmiðin sett hátt en samt sem áður raunhæf. Flottur hópur hesta eru á húsi og er markmiðið að allir fjölskyldumeðlimir verði duglegri í hesthúsinu. Heimasætan var dressuð upp í ný reiðföt um jólin og spurning hvort frúin á bænum dusti rikið af reiðbuxunum og hjálminum og rifji upp gleymda takta í hestamennskunni. 
Mottó ársins 2014
"Jákvætt hugarfar kemur okkur á áfangastað" 

Comments are closed.
    Picture
    Picture
    Bella
    Picture

Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Forsíða
  • Hafa samband