SIGVALDI LÁRUS
  • Forsíða
  • Hafa samband

KS deildin á miðvikudaginn!!

24/2/2014

 
Fyrsta mót KS-deildarinnar er næstkomandi miðvikudag og hefst hún á keppni í fjórgangi. Eins og fram hefur komið mun Sigvaldi vera með að þessu sinni eftir að hafa verið valinn af meistara Bjarna Jónassyni í lið sitt Weierholz sem er einnig skipað honum Jóhanni Magnússyni. Bjarni hefur sagt opinberlega að ástæðan fyrir valinu sé sú að Sigvaldi sé auðveldur viðureignar, enda sé hann Dalamaður. Við hér leggjumst nú ekki svo lágt að setja út á uppruna liðsfélaganna en vitum þó vel að Bjarni er Reykhólamaður sem þykir nú ekki sérlega merkilegur pappír í Dölunum. Hinsvegar er klárt mál að þegar einn Reykhólamaður, einn Dalamaður og einn Húnvetningur koma saman verður eitthvað svaðalegt. Er það ekki svoleiðis að þegar tveir mínusar koma saman verður einn plús? Hvað þá þrír...þá hlýtur að koma einn FEITUR plús!!

Það kemur betur í ljós á miðvikudaginn þegar þessir fallegu menn (að sögn Bjarna) koma saman ásamt löngum lista af mótherjum og hestum þeirra sem eru nú ekki allir af verri endanum!! 

Sigvaldi mætir með Smyril en þeir tveir eru einmitt ræktaðir frá sama bæ, Hamraendum í Dölum! Smyrill er Þristssonur frá Feti, 9 vetra gamall og algjörlega óreyndur á keppnisvellinum en í honum býr slatti af hæfileikum  en reynslan er það sem vantar og kemur í ljós hvernig þeir félagar taka sviðsljósinu. 

Spennan magnast, nú verður ekkert beðið lengur, það er komið að þessu! 

Nú er lítið hægt að fiffa það sem betur mætti vera...nema kannski maka geli í hárið og skella sér í einn ljósatíma til að eiga möguleika á nokkrum auka stigum frá dómurunum ef allt annað fer miður!


Sjáumst á miðvikudaginn í Svaðastaðahöllinni á slaginu 20:00!

                             
                                                           Áfram WEIERHOLZ!!!

Picture
Afkomendur Hamraenda á ferðinni í vetur.
Picture
Liðstjórinn og sérlegur aðstoðamaður og aðdáandi nr. 1 að leggja línurnar fyrir Dalamönnunum á æfingu á dögunum.
Picture
Liðstjórinn að segja hvernig eigi ekki að gera hlutina.
Ráslisti:

1. Bjarni Jónasson – Roði frá Garði   / Weierholz

2. Tryggvi Björnsson – Þytur frá Húsavík   / Top Reiter – Syðra Skörðugil

3. Hlín C Mainka Jóhannesdóttir – Dúkkulýsa frá Þjóðólfshaga   / Björg – Fákasport

4.Jóhann B. Magnússon – Embla frá Þóreyjarnúpi   / Weierholz

5. Ísólfur Líndal Þórisson – Kristófer frá Hjaltastaðahvammi   / Laekjamot.is

6. Baldvin Ari Guðlaugsson – Öngull frá Efri-Rauðalæk   / Top Reiter – Syðra Skörðugil

7. Viðar Bragason – Björg frá Björgum   / Björg – Fákasport

8. Líney María Hjálmarsdóttir – Völsungur frá Húsavík   / Hrímnir

9. Elvar E. Einarsson  – Hlekkur frá Lækjamóti   / Top Reiter – Syðra Skörðugil

10. Mette Mannseth   – Trymbill frá Stóra-Ási   / Draupnir – Þúfur

11. Sölvi Sigurðarson – Bjarmi frá Garðakoti   / Laekjamot.is

12. Arnar Bjarki Sigurðarson – Mímir frá Hvoli   / Draupnir – Þúfur

13. Sigvaldi Lárus Guðmundsson – Smyrill frá Hamraendum   / Weierholz

14. Vigdís Gunnarsdóttir – Freyðir frá Leysingjastöðum   / Laekjamot.is

15. Þórarinn Eymundsson – Taktur frá Varmalæk   / Hrímnir

16. Þorbjörn  H. Matthíasson – Fróði frá Akureyri   / Björg – Fákasport

17. Hörður Óli Sæmundarson – Fífill frá Minni-Reykjum   / Hrímnir

18. Gísli Gíslason – Ljóska frá Borgareyrum   / Draupnir – Þúfur 

Comments are closed.
    Picture
    Picture
    Bella
    Picture

Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Forsíða
  • Hafa samband